Velkomin á Torfastaði

Torfastaðir eru í Biskupstungum, á leiðinni að Geysi og Gullfossi, um 88 kílómetra frá Reykjavík, mjög stutt frá Skálholti. Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir eiga Torfastaði og búa þar. Þar var einnig rekið Meðferðarheimilið Torfastöðum á árunum 1979-2004.

Hrossabúskapur er aðaláhugamál Torfastaðahjóna. Hrossarækt er talsverð, margar hryssur hafa fengið fyrstu verðlaun í ræktuninni. Randalín IS1989287505 frá Torfastöðum stendur þar efst, og dóttir hennar Randfríður frá Torfastöðum IS1999288504 hlaut einkunnina 8,30 á Landsmóti hestamanna 2004. Heiðurshryssan Randalín IS1989287505 er í mynd hér á forsíðunni.

Öll hrossin okkar eru skráð í http://www.worldfengur.com. Einnig er hægt að sjá fleiri myndir á drifakristjans.blog.is

Sumarið 2003 var skipulagt sumarhúsasvæði á Torfastöðum. Svæðið er rétt fyrir ofan bæinn, útsýnið alveg frábært. Nánari upplýsingar eru síðunni um sumarbústaðalandið.